Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík

Aðalfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 20. febrúar kl. 17:00 í sal Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg 1.
Dagskrá skv. lögum aðalfundar SffR
- Skýrsla stjórnar
- Samþykkt ársreiknings
- Skýrsla skoðunarnefndar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun ársgjalds
- Kjör formanns
- Kjör gjaldkera
- Kjör annarra stjórnarmanna
- Kjör varamanna
- Kjör þriggja manna skoðunarnefndar
- Kjör í nefndir a) uppstillingarnefnd b) í aðrar nefndir sem aðalfundur ákveður
- Önnur mál
Lagabreytingar eru engar en ósk hefur borist um að ræða lögin undir lið 4.
Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna uppstillingarnefnd og einn til vara að tillögu fráfarandi stjórnar félagsins. Hlutverk nefndarinnar er að leggja fyrir aðalfund tillögur um frambjóðendur við kjör formanns, annarra stjórnarmanna, varamanna og skoðunarnefndarmanna.
Tillögur uppstillingarnefndar skulu liggja fyrir á skrifstofu félagsins minnst viku fyrir aðalfund. Aðrar tillögur skulu berast skrifstofu félagsins minnst 2 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund í netfangið samfylking@samfylking.is.